Tenglar:
Hólaskóli
Landbúnaðarráðuneytið
Bændasamtökin
Slátrun á vegum Kaupfélags Skagfirðinga hófst fljótlega um eða upp úr aldamótunum 1900. Fyrsta sláturhús á vegum félagsins var reist austan við Aðalgötuna á Sauðárkróki, gegnt Gránu, þar sem höfuðstöðvar KS voru frá 1904. Síðar var byggt sláturhús austan Freyjugötu, þar sem Varahlutaverslunin er núna. Upp úr 1950 var svo hafist handa við að reisa húsasamstæðuna á Eyrinni, þar sem sláturhúsið og Fisk-Seafood eru í dag. Sláturhúsið var síðan endurbyggt á árunum 1972 og 1973
Á árunum 2000 - 2004 hefur farið fram víðtæk endurnýjun á búnaði og vinnslulínum sláturhússins samhliða endurskipulagningu á vinnutilhögun. Haustið 2004 var lógað yfir 100 þús. fjár hjá afurðastöðinni og á árinu nam nautgripaslátrun nær 1.750 gripum og 400 folöldum og hrossum.
Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga rekur eitt stærsta og best búna sauðfjársláturhús landsins. Haustslátrun 2004 nam rúml. 100 þúsundum fjár. Sláturhúsið hefur leyfi til útflutnings á Evrópusambandið og er talsverður hluti þess kjöts sem til fellur flutt út, en þá einkum úrbeinað og/eða niðurhlutað. Ný og mjög vönduð vinnslulína fyrir úrbeiningu er m.a. notuð í þessu skyni, en hún nýtist að sjálfsögðu einnig fyrir sölu á innanlandsmarkað. Afurðastöðin rekur einnig vel búið stórgripasláturhús og aðstaða er einnig til svínaslátrunar. Nokkur úrvinnsla fer einnig fram í afurðastöðinni. Viðskiptasvæði afurðastöðvarinnar er í sjálfu sér landið allt, en mest viðskipti eru við heimahéraðið, Vestfirði, Barðaströnd, Strandir, Dalasýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslur og Snæfellsnes, auk þess sem nokkur viðskipti eru við bændur í Eyjafjarðarsýslu, Þingeyjarsýslum og Múlasýslum.
Forstöðumaður er Ágúst Andrésson
Sími Kjötafurðastöðvar KS er 455 4580, fax 455 4581