Mjólkursamlag KS var stofnað árið 1935. Síðan hefur starfsemin stöðugt aukist og eflst og er nú tekið á móti nær 11 millj. lítra af mjólk til úrvinnslu frá framleiðendum á ári. Stöðugt er unnið að tæknilegum endurbótum og síðustu ár hefur aðal vinnslulína samlagsins verið endurnýjuð frá grunni. Samlagið sér sjálft um sölustarfsemi á heimamarkaði, en hefur samstarf við Mjólkursamsöluna um sölu á ferskvörum annarsstaðar og Osta & Smjörsalan sér um heildsöludreifingu á öðrum framleiðsluvörum.

Samlagsstjóri er Snorri J. Evertsson

Sími Mjólkursamlag KS er 455 4600, fax 455 4601.


Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500