www.fisk.is

Á Þorláksmessu árið 1955 var hlutafélagið Fiskiðja Sauðárkróks stofnuð til að starfrækja fiskvinnslu í nýbyggingum Kaupfélags Skagfirðinga á Eyrinni, og nýta þar með það hagræði, sem ná mátti með því að nýta frystigetu þá sem setja þurfti upp til frystingar og geymslu á kjöti og sláturafurðum samhliða við fiskvinnsluna. Upphaflega var Sauðárkrókskaupstaður meðeigandi að fyrirtækinu, en dró sig síðar út úr því. Margar tilraunir voru gerðar til togskipaútgerðar í Skagafirði en það var ekki fyrr en með stofnun Útgerðarfélags Skagfirðinga árið 1968, sem verulegur skriður kom á þau mál. ÚS lenti í rekstrar- og fjárhagserfiðleikum undir lok níunda áratugar síðustu aldar og var að hluta til skipt upp en að hluta sameinað rekstri þeim er Fiskiðjan hafði haft með höndum og stofnað hlutafélagið Fiskiðjan Skagfirðingur hf. FISK keypti síðar Hraðfrystihúsið hf. í Grundarfirði og einnig Hraðfrystihúsið Skjöld hf. á Sauðárkróki. Á árinu 2004 var svo tekið um samstarf við Skagstrending hf. á Skagaströnd og komu félögin ásamt öðrum þar að sem eignaraðilar. Nánari upplýsingar um rekstur Fisk-Seafood má fá á vef fyrirtækisins, www.fisk.is


Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500