Vörumiðlun ehf.
Vörumiðlun ehf. var á stofnuð árið 1996 með samruna Flutningadeildar KS og Vörufl. Magnúsar Svavarssonar á Sauðárkróki. Varð þá þegar til öflugt flutningafyrirtæki með afkastamikinn flota flutningatækja af ýmsu tagi. Á árinu 2004 voru síðan flutningafyrirtækin Húnaleið á Skagaströnd og Tvisturinn á Blönduósi sameinuð Vörumiðlun. Ræður hið sameinaða fyrirtæki yfir nær þremur tugum flutningabifreiða af ýmsum stærðum og gerðum, auk lyftara og hjálparbúnaðar af ýmsu tagi. Fyrirtækið hefur til þessa verið með höfuðstöðvar sínar í leiguhúsnæði við Borgarteig á Sauðárkróki, en er nú að reisa nýbyggingu fyrir starfsemi sína á lóð KS á Eyrinni á Sauðárkróki. Að auki hefur fyrirtækið húsnæði á Blönduósi og á Skagaströnd. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Magnús E. Svavarsson og stjórnarformaður Þórólfur Gíslason, kaupfélagssstjóri.