24. apríl 2009
| Fréttir

Kaupfélag Skagfirðinga120 ára

Kaupfélag Skagfirðinga varð 120 ára 23. apríl en félagið var stofnað 23. apríl 1889
Í tilefni dagsins bauð félagið til Skagfirðingum og öðrum gestum til afmælisfagnaðar og vígslu á nýrri verkstæðisbyggungu að Hesteryi á Sauðákróki.  Mikill mannfjöldi mætti til afmælisfagnaðarins og var fullt útúr dyrum í bókstaflegri merkingu.

Haldnar voru ræður og flutt fjölbreytt tónlistaratrið frá skagfirsku tónlistarfólki og m.a. frumfluttu Álftagerðisbræður nýtt lag er Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson og Geirmundur Valtýsson höfðu samið sérstaklega fyrir afmælisbarnið. 
Stjórn félagsins ákvað í tilefni afmælisins að afhenda Heilbriðgisstofnuninni á Sauðárkróki 12 milljónir styrk til tækjakaupa.  Á eftir formlegri dagsrká var boðið upp á afmælistertu og nýja verkstæðisbyggingin var til sýnis fyrir gesti. Verkstæðisbyggingunni er ætlað að húsa bíla, véla- og rafmagnsverkstæði ásamt töluvþjónustu og verslun.

Til baka



Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500