18. nóvember 2009
| Fréttir

Áfram með smjörið var eitt sinn sagt

Á dögunum var nýr ostahnífur afhentur Mjólkursamlagsmönnum, hann mun þjóna í rifostdeild. Hnífinn smíðuðu þeir Vélaverkstæðismenn KS og er eitt margra verka sem þeir fá inná sýn borð. 

Myndin er af hnífnum góða og eru standandi hjá Hjörtur Elefsen verkstjóri, Elvar Már Jóhannsson yfirsmiður að gripnum, Jón Þór Jósepsson og Snorri Evertsson Mjólkursamlags forkólfar.

Nú eru menn farnir að tala um að það sé gangur í rifó, já íslenskan breytist.  Gangur í rifó merkir jú að  ostur er tættur og rifinn í stórvirkum vélum, til notkunar í matargerð og pizzuframleiðslu og til þess þarf góð verkfæri og snjalla menn.

Til baka



Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500