Nokkrir þættir úr sögu og starfsemi KS

 

     Kaupfélag Skagfirðinga var stofnað 23. apríl árið 1889 af fulltrúum bænda úr þáverandi sveitarfélögum í Skagafirði og Bólstaðarhlíðarhrepps í Austur-Húnavatnssýslu. Framan af var félagið fyrst og fremst vörupöntunarfélag bænda, sem átti samstarf við enska sauðakaupmenn, en þeir keyptu fé á fæti og fluttu út og greiddu fyrir í gulli. Síðar tók fyrir sauðasöluna til Bretlandseyja og hófst þá útflutningur á saltkjöti, einkum til Noregs. Þar með hófust afskipti félagsins af afurðasölumálum bænda og slátrun búfjár. Síðar þróaðist rekstur verslunar árið um kring og fyrsta hús sem KS reisti var Uppsalir, “Grána”  (nú Aðalgata 21) árið 1904 og hýsti það verslun félagsins og aðra starfsemi. Árið 1935 var svo stofnsett mjólkursamlag og hefur verið rekið samfleytt síðan. Árið 1955 var stofnað fyrirtækið Fiskiðja Sauðárkróks h.f., sem KS átti fyrst meirihluta í en síðan allt og starfaði það að fiskvinnslu á Sauðárkróki. Árið 1968 var Útgerðarfélag Skagfirðinga h.f. stofnað með aðild KS og var starfsemi þess og Fiskiðjunnar sameinuð árið 1989. Síðar var Hraðfrystihúsið Skjöldur h.f. á Sauðárkróki og Hraðfrystihús Grundarfjarðar h.f. á Grundarfirði keypt og hafa fyrirtækin verið rekin sameiginlega undir nafninu Fiskiðjan Skagfirðingur hf. - Á árinu 2004 keyptu svo Fiskiðja Sauðárkróks ehf. og Hesteyri ehf. ásamt VÍS hf. meirihluta hlutafjár í Skagstrendingi hf. á Skagaströnd og munu fyrirtækin starfa sameiginlega í framtíðinni undir nafninu FISK Seafood.  Rekur FISK umfangsmikla starfsemi á Sauðárkróki, þar með talda ýmiskonar landvinnslu á fiski, bæði frystingu, söltun og herslu. Frá Sauðárkróki  gerir FISK út tvo ísfisktogara, Hegranes SK 2 og Klakk SH 510  og einn frystitogara, Málmey SK 1. Er afli skipanna jöfnum höndum unninn í landi eða fluttur út eftir því hvað hentar aðstæðum hverju sinni. Í Grundarfirði er rekin úrvinnsla á skelfiski og rækju og einnig er þar nokkur karfavinnsla. Á Skagaströnd er svo bolfiskvinnsla auk þess sem þar eru gerðir út tveir frystitogarar, Arnar og Örvar.  Af öðrum fyrirtækjum sem KS er eignaraðili að má nefna  flutningafyrirtækið Vörumiðlun ehf. sem gerir út á þriðja tug flutningabifreiða frá Sauðárkróki, Blönduósi og Skagaströnd, auk ýmiskonar flutningatengdri  þjónustu  svo sem skipaafgreiðslu, sem sér um allar afgreiðslur og þjónustu við skip í Sauðárkrókshöfn. Ennfremur má nefna eignarhaldsfélögin Fiskiðju Sauðárkróks hf. og Hesteyri 2 ehf. og gagnamiðlunarfyrirtækið Fjölnet ehf. 

     Kaupfélag Skagfirðinga rekur umfangsmikla verslunarþjónustu á Sauðárkróki, þar er helst vöruhúsið Skagfirðingabúð, Verslunin Eyri, sem selur bygginga- og fjárfestingavörur, áburðarsölu,  varahlutaverslun og innflutningsverslun. Félagið er með útibú á Hofsósi og í Fljótum sem og veitinga- og verslunarþjónustu í Varmahlíð. Mjólkursamlagsrekstur hefur þegar verið nefndur og einnig rekur félagið eitt stærsta og fullkomnasta sláturhús landsins á Sauðárkróki og þar er einnig nokkur úrvinnsla á kjöti. Önnur þjónusta við landbúnað sérstaklega er rekstur á Fóðursmiðjunni í Vallhólmi, sem framleiðir og selur fóðurblöndur og aðrar fóðurvörur víða um land og einnig rekur félagið fóðurstöð fyrir loðdýr, sem þjónar öllu Norðurlandi. Þjónustuiðnaður er talsvert umsvifamikill á vegum félagsins og má þar nefna stórt vélaverkstæði, sem þjónar jafnt útgerð, landbúnaði og öðrum greinum með nýsmíði og viðgerðir, bifreiðaverkstæði, smurstöð og hjólbarðaviðgerðir og –sölu og einnig er starfrækt þjónusta á sviði rafmagns- og kælitækjaviðgerða, þvottahús og framleiðslu á polyester-kembu. Alls eru starfsmenn KS og tengdra fyrirtækja í Skagafirði hátt á fimmta hundrað talsins og má því ætla, að allt að helmingur Skagfirðinga hafi framfærslu sína beint af störfum á vegum þess. Þar til viðbótar er svo starfsfólk FISK Seafood á Skagaströnd og í Grundarfirði. 



Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500