S a m n i n g u r
um fjárstuðning við skólamál í Skagafirði.
“Sáttmáli til sóknar í skólamálum í Skagafirði”
Aðilar að samningnum:
Kaupfélag Skagfirðinga fyrir hönd samstarfsfyrirtækja KS, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.
Kaupfélag Skagfirðinga, kt. 680169 5009, Sveitarfélagið Skagafjörður, kt. 550698 2349 og Akrahreppur, kt. 410169 3209 gera með sér svofelldan
s a m n i n g .
1. Til verkefnisins verja aðilar kr. 100.000.000 – eitt hundrað milljónum króna – sem skiptist í jöfn framlög á fjögurra ára tímabil (skólaár) eða kr. 25.000.000 – tuttugu og fimm milljónir króna – árlega.
2. Árlegt framlag samstæðufyrirtækja Kaupfélags Skagfirðinga til átaksins er kr. 17.500.000, - sautján milljónir og fimm hundruð þúsund krónur – Árlegt mótframlag sveitarfélaganna er kr. 7.500.000,- sjö milljónir og fimm hundruð þúsund krónur.
3. Sérstök verkefnisstjórn útfærir nánar markmið átaksins. Sama verkefnisstjórn úthlutar fjármagninu og heldur stjórnunarlega og fjárhagslega utan um verkefnið.
4. Verkefnisstjórn er óbundin
5. Verkefnisstjórn heldur bókaða fundi og skilar ársreikningum til þeirra, sem að verkefninu standa, með áritun endurskoðenda.
6. Verkefnisstjórn er skipuð til fjögurra ára og sitja í henni þessir fulltrúar: Tveir tilnefndir af Kaupfélagi Skagfirðinga og samstarfsfyrirtækjum og skal annar þeirra vera formaður. Einn tilnefndur af Sveitarfélaginu Skagafirði. Einn tilnefndur af skólastjórum grunnskólastigsins (ef ekki næst samstaða um fulltrúann, tilnefnir fræðslunefnd einn úr hópi starfsmanna grunnskólastigsins). Einn tilnefndur af skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og einn tilnefndur af rektor Hólaskóla, háskólans á Hólum. Þeir hinir sömu tilnefna og
7. Verkefnisstjórn skal leitast við að fá sem almennasta þátttöku í verkefninu meðal starfsmanna allra skóla í Skagafirði og annarra þeirra, er málið
Sauðárkróki 10. september 2006
f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar f.h. Kaupfélaga Skagfirðinga
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir Þórólfur Gíslason
forseti sveitarstjórnar kaupfélagsstjóri
f.h. Akrahrepps
Agnar H. Gunnarsson
oddviti hreppsnefndar
Leiðbeinandi starfsreglur fyrir verkefnisstjórn “Sáttmála”
1. Verkefnisstjórn styrkir þróunarverkefni og starfsmenntun í skólum í Skagafirði og veitir auk þess styrki til kaupa á tækjum og búnaði í skóla í héraðinu. Við úthlutun fjármagns fer verkefnisstjórnin eftir ábendingum, umsóknum og áherslum sem stjórnin sjálf setur sér.
2. Um fjárhagslegan stuðning og/eða fjármögnun einstakra verkefna geta allir sótt, einstaklingar, samstarfshópar, stofnanir, nemendafélög og önnur samtök, svo fremi að verkefni það sem sótt er um fjármagn til að styrkja, tengist með beinum hætti skólastarfi í Skagafirði. Verkefnisstjórn skal auglýsa verkefnið opinberlega og hvetja til þátttöku og óska eftir hugmyndum og ábendingum.
3. Auglýst skal eftir umsóknum um fjárstuðning sbr 1.gr. tvisvar á ári og skulu umsóknir berast til verkefnisstjórnar fyrir 15. mars og 15. október ár hvert. Umsóknir skulu metnar með hliðsjón af markmiðum sem þar er lýst og eftir væntanlegum ávinningi fyrir skólastarf í héraðinu. Verkefnisstjórn getur leitað eftir faglegri umsögn annarra um umsóknir eftir því sem hún telur þörf á.
7. Verkefnisstjórn getur farið fram á mótframlag umsækjanda styrks í einstökum verkefnum eða búnaðarkaupum, stjórnin getur einnig sett ákveðin tímamörk við einstök verkefni.
Í verkefnastjórn eru:
Ásta B. Pálmadóttir
Herdís Sæmundardóttir
Ólafur Sigmarsson
Jón F. Hjartarson
Einar E. Einarsson
Páll Dagbjartsson
Skýrsla um framhalds- og háskólanám í Skagafirði
Umsókn um styrk vegna tækja eða búnaðar