Stofnað 1889
KS : Fyrirtækið : Fréttir : Nánar
Það er margt starfið.
25. apríl 2006
Aðalskrifstofa

Þau eru margvísleg störfin sem þarf að vinna áður en hægt er að ganga frá ársreikningum og leggja þá fram fyrir aðalfund.  Þar á meðal eru störf félagskjörinna skoðunarmanna.

Guðmann og Tryggvi

Þeir eru kjörnir af aðalfundi félagsins og sannreyna ýmis atriði í rekstri fyrirtækisins; meðferð ogvarðveislu eigna, hvernig afgreiðslum aðalfunda er framfylgt og hvort störf stjórnar og stjórnenda samrýmast samþykktum félagsins og lögum um samvinnufélög. Þeir starfa náið með löggiltum endurskoðendum og hafa við þá samráð um álitamál ef einhver eru. Nú um þessar mundir sinna þessum verkefnum tveir af fyrrverandi starfsmönnum KS, þeir Guðmann Tobíasson, fv. útibússtjóri í Varmahlíð ogTryggvi G. Eymundsson, sem starfaði áratugum saman á aðalskrifstofu. Sigríður Sigurðardóttir, sem sér m.a. um tollafgreiðslur á skrifstofu KS, hitti þá við störf sín á dögunum og smellti af þeim félögunum meðfylgjandi mynd.