Þriðjudaginn 4. desember 2007 kom stjórn Menningarsjóðs KS saman til árlegrar úthlutunar styrkja til einstaklinga og félagasamtaka í Skagafirði.
Eftirtaldir hlutu styrki að þessu sinni:
Alþýðulist
Áhugamannahópur um byggingu minnisvarða um ferjumanninn Jón Ósmann.
Björgunarsveitin Skagfirðingasveit
Eiður Guðvinsson
Féla harmónikuunnenda í Skagafirði
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
Jón Ormar Ormsson
Karlakórinn Heimir
Kirkjukór Sauðárkrókskirkju
Leikfélag Sauðárkróks
Linda Björk Valbjörnsdóttir
Minningarsjóður sr. Ragnars Fjalars Lárussonar
Rósmundur Ingvarsson
Rökkurkórinn
Skagfirski kammerkórinn
Skotta ehf.
Skíðadeild Tindastóls
Sönghópur eldri borgara
Ungmennafélagið Tindastóll
Menningarsjóður KS hefur nú starfað í hálfan fimmta áratug. Hann hefur komið víða við og veitt styrki til margra félaga og verkefna, er til framfara hafa horft á hverjum tíma og menningarauki verið talinn að.
Í stjórn Menningarsjóðs KS sitja nú: Stefán Guðmundsson, formaður, Þórólfur Gíslason, Inga Valdís Tómasdóttir, Einar Gíslason og Efemía G. Björnsdóttir.



