Stofnað 1889
KS : Fyrirtækið : Fréttir
9. nóvember 2011
Aðalskrifstofa

Sláturtíð lauk hjá Kjötafurðastöð KS föstudaginn 28. okt. Þrátt fyrir hæga byrjun þá gekk sláturtíðin vel. Aldrei hefur verið slátrað eins miklu á 8 vikum en gríðarleg ásókn var í slátrun yfir há anna tímann.  Heildarslátrun ársins er komin yfir 114. þúsund fjár. Ætla má að eitthvað sé eftir og er reiknað með að sauðfjárslátrun verði í byrjun desember í einn eða tvo daga.  Meðalvigt dilka í sláturtíð var 15,79 kg.

12. október 2011
Skagfirðingabúð

Bændadagar verða í Skagfirðingabúð næstkomandi fimmtudag og föstudag (13. - 14. október).

5. október 2011
Aðalskrifstofa

Nú þegar sláturtíð er hálfnuð þá er búið að slátra 53 þúsund fjár. og meðalvigtin er 16,14 kg. Meðaleinkunn fyrir gerð er 8,9 og fyrir fitu 6,7.

26. september 2011
Aðalskrifstofa

Slátrun er komin á fullt skrið og í lok þriðju viku sláturtíðar hefur verið slátrað nánast sama fjölda og á sama tíma og í fyrra eða 37 þús. stk.  Meðalvigtin er enn hærri eða 16,17 kg. en var 16,03 kg. fyrir ári síðan á sama tíma.

21. september 2011
Aðalskrifstofa

Ákveðið hefur verið að breyta verði á þjónustu Kjötafurðarstöðvar KS í heimtöku stórgripa.

19. september 2011
Aðalskrifstofa

Nú þegar annarri viku í sláturtíð er lokið þá hefur verið slátrað rúmlega 19.500 stk.  og sláturfjárloforðin eru komin uppí 97. Þús. 

13. september 2011
Aðalskrifstofa

Sauðfjárslátrun hófst þriðjudaginn 6.sept.  Slátrun fór mjög rólega af stað en ekki var slátrað nema 4.470 stk. fyrstu vikuna.  Meðalvigt var 15,7 kg.

31. ágúst 2011
Aðalskrifstofa

Kjötafurðarstöð KS hefur uppfært verðskrá sína fyrir yfirstandandi sauðfjárslátrun. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins undir 'Starfsemi - Kjötafurðarstöð - Verðlisti til bænda'.