Stofnað 1889
KS : Samfélagið

Kaupfélag Skagfirðinga er samvinnufélag í eigu félagsmanna í Skagafirði og starfar á héraðslegum forsendum. Félagið leggur áherslu á samfélagslega ábyrgð sína og að hagsmunir þess fari saman með íbúum héraðsins. Kaupfélag Skagfirðinga hefur því lagt hönd á plóg til að efla héraðið í víðum skilningi, hvort sem er í atvinnumálum, menntamálum, félagsmálum, menningarmálum eða í listum. Félagið vill taka þátt í samstarfi með einstaklingum, félögum og stofnunum sem horfa til framfara í Héraðinu öllu.