Kaupfélag Skagfirðinga svf. er samvinnufélag í blönduðum rekstri. Helstu rekstrareiningarnar eru; mjólkurafurðarstöð, kjötafurðastöð, Kjarninn þjónustuverkstæði, dagvöru- og ferðamannaverslun í Skagafirði og Verslunin Eyri.
Mjólkurafurðastöðin hefur stækkað á undanförnum árum samhliða framleiðsluaukningu skagfirskra mjólkurbænda. Á árinu 2011 framleiddu skagfirskir mjólkurbændur 12,3 milljónir lítra, samanborið við 8,5 milljónir lítra árið 1990. Mjólkursamlagið framleiðir aðallega brauðosta, smjör, smjörva, mozzarella slöngur og kúlur auk rifosts.
Kjötafurðastöð KS sérhæfir sig í slátrun sauðfjár, nautgripa, hrossa og úrvinnslu þeirra afurða. Kjötafurðastöðin er eitt afkastamesta sauðfjársláturhús landsins. Þekking hefur verið sótt undanfarin ár til Nýja Sjálands, þar sem þróun slátrunar og úrvinnsla afurða er einna fremst í heiminum. KS á helmingshlut í Sláturhúsi SKVH og samanlagt er sauðfjárslátrun þessara tveggja afurðastöðva yfir þriðjungur af landsframleiðslu.
Þjónustuverkstæðið Kjarninn var opnaður árið 2009 á 120 ára afmælisári Kaupfélags Skagfirðinga. Þar er í sama kjarnanum rekið bifreiðaverkstæði, vélaverkstæði, rafmagnsverkstæði og tölvufyrirtæki. Auk þess er þar verslun með vörur tengdar starfseminni.
Skagfirðingabúð á Sauðárkróki er stærsta verslun félagsins þar sem seldar eru dagvörur og sérvörur. Einnig eru þjónustuverslanir í Varmahlíð, á Hofsósi og á Ketilási í Fljótum. Verslunarstarfsemi Kaupfélags Skagfirðinga afmarkast við Skagafjörð.


