S a m n i n g u r
um fjárstuðning við skólamál í Skagafirði.

“Sáttmáli til sóknar í skólamálum í Skagafirði”

Aðilar að samningnum:

Kaupfélag Skagfirðinga fyrir hönd samstarfsfyrirtækja KS, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.

Kaupfélag Skagfirðinga, kt. 680169 5009, Sveitarfélagið Skagafjörður, kt. 550698 2349 og Akrahreppur, kt. 410169 3209 gera með sér svofelldan

s a m n i n g .

1.     Til verkefnisins verja aðilar kr. 100.000.000 – eitt hundrað milljónum króna – sem skiptist í jöfn framlög á fjögurra ára tímabil (skólaár) eða kr. 25.000.000 – tuttugu og fimm milljónir króna – árlega.

2.     Árlegt framlag samstæðufyrirtækja Kaupfélags Skagfirðinga til átaksins er kr. 17.500.000, - sautján milljónir og fimm hundruð þúsund krónur – Árlegt mótframlag sveitarfélaganna er kr. 7.500.000,- sjö milljónir og fimm hundruð þúsund krónur.

3.     Sérstök verkefnisstjórn útfærir nánar markmið átaksins. Sama verkefnisstjórn úthlutar fjármagninu og heldur stjórnunarlega og fjárhagslega utan um verkefnið.

4.     Verkefnisstjórn er óbundin varðandi ráðstöfun fjármagns að öðru leyti en því, að fjármunum skal ekki varið til hefðbundinna fjárfestinga, t.d. bygginga. Samt skal heimilt að verja allt að 40% af árlegu fjármagni til kaupa á tækjum og búnaði. Árlega verði haldinn sameiginlegur fundur verkefnastjórnar með aðilum samningsins, þar sem farið er yfir síðasta skólaár, áherslur verkefnastjórnar og skiptst á skoðunum um framgang sáttmálans.

5.     Verkefnisstjórn heldur bókaða fundi og skilar ársreikningum til þeirra, sem að verkefninu standa, með áritun endurskoðenda.

6.     Verkefnisstjórn er skipuð til fjögurra ára og sitja í henni þessir fulltrúar: Tveir tilnefndir af Kaupfélagi Skagfirðinga og samstarfsfyrirtækjum og skal annar þeirra vera formaður. Einn tilnefndur af Sveitarfélaginu Skagafirði. Einn tilnefndur af skólastjórum grunnskólastigsins (ef ekki næst samstaða um fulltrúann,  tilnefnir fræðslunefnd einn úr hópi starfsmanna grunnskólastigsins). Einn tilnefndur af skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og einn tilnefndur af rektor Hólaskóla, háskólans á Hólum. Þeir hinir sömu tilnefna og varamenn fyrir skipaða fulltrúa.

7.     Verkefnisstjórn skal leitast við að fá sem almennasta þátttöku í verkefninu meðal starfsmanna allra skóla í Skagafirði og annarra þeirra, er málið varðar. Að átakinu loknu skal verkefnisstjórn skila samningsaðilum skýrslu um verkefnið í heild sinni.

Sauðárkróki  10. september 2006

f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar             f.h. Kaupfélaga Skagfirðinga
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir                     Þórólfur Gíslason

forseti sveitarstjórnar                              kaupfélagsstjóri


f.h. Akrahrepps
Agnar H. Gunnarsson      
oddviti hreppsnefndar

 

 Leiðbeinandi starfsreglur fyrir verkefnisstjórn “Sáttmála”

1. Verkefnisstjórn styrkir þróunarverkefni og starfsmenntun í skólum í Skagafirði og veitir auk þess styrki til kaupa á tækjum og búnaði í skóla í héraðinu. Við úthlutun fjármagns fer verkefnisstjórnin eftir ábendingum, umsóknum og áherslum sem stjórnin sjálf setur sér.

2. Um fjárhagslegan stuðning og/eða fjármögnun einstakra verkefna geta allir sótt, einstaklingar, samstarfshópar, stofnanir, nemendafélög og önnur samtök, svo fremi að verkefni það sem sótt er um fjármagn til að styrkja, tengist með beinum hætti skólastarfi í Skagafirði. Verkefnisstjórn skal auglýsa verkefnið opinberlega og hvetja til þátttöku og óska eftir hugmyndum og ábendingum.

3. Auglýst skal eftir umsóknum um fjárstuðning sbr 1.gr. tvisvar á ári og skulu umsóknir berast til verkefnisstjórnar fyrir 15. mars og 15. október ár hvert. Umsóknir skulu metnar með hliðsjón af markmiðum sem þar er lýst og eftir væntanlegum ávinningi fyrir skólastarf í héraðinu. Verkefnisstjórn getur leitað eftir faglegri umsögn annarra um umsóknir eftir því sem hún telur þörf á.

4. Umsækjendum skal látið í té sérhannað umsóknareyðublað og þar komi fram að væntanlegum styrkþegum beri skylda til við lok verkefnis (innan fjögurra vikna) að skila verkefnisstjórn ýtarlegri skýrslu um verkefnið, bæði hvað varðar framkvæmd þess, svo og matsniðurstöður að verkefni loknu. Verkefnisstjórn getur farið fram á áfangaskýrslu á framkvæmdatíma verkefnis ef ástæða þykir til. Þar skal einnig koma fram að væntanlegur styrkþegi skuldbindur sig til þess, ef verkefnisstjórn óskar eftir, að kynna viðkomandi verkefni í héraði.

5. Í umsóknum um fjárstuðning við einstök verkefni skal eftirfarandi koma fram m.a.:
* Nafn umsækjanda (Einstakl, hópur, stofnun, ........)
* Heiti verkefnis
* Lýsing verkefnis
* Framkvæmda- og tímaáætlun 
* Hverjir vinna verkið
* Nafn ábyrgðaraðila, bæði hvað varðar faglegan stuðning svo og fjármál
* Sundurliðuð fjárhagsáætlun
* Heildarfjárhæð sem sótt er um
* Upplýsingar um aðra fjármögnun, ef einhver er.
* Áætlun um mat á verkefni
* Greinargóð lýsing á markmiði verkefnisins og hvernig því er ætlað að
   koma að  gagni fyrir skólastarf í Skagafirði.    
* Staðfesting skólastjóra/forstöðumanns stofnunar/stofnana þar sem
   umsækjandi  starfar og styrknum er ætlað að nýtast.
 
      Þegar sótt er um styrk til  kaupa á tækjum og búnaði skal fylgja umsókn:
      * Nafn umsækjanda (Einstakl, hópur, s tofnun, ...... )
      * Heiti tækis/búnaðar
      * Áætlaður kostnaður
      * Heildarfjárhæð sem sótt er um
      * Upplýsingar um aðra fjármögnun, ef einhver er
      * Hvar setja skal niður viðkomandi búnað/tæki.
      * Greinargóðar upplýsingar um hvernig búnaður sá sem kaupa skal 
         nýtist fyrir skólastarf í Skagafirði
      * Staðfesting skólastjóra/forstöðumanns stofnunar/stofnana þar sem
         umsækjandi starfar og styrknum er ætlað að nýtast.
 
6. Verkefnisstjórn fer yfir umsóknir sem berast og metur þær. Verkefnisstjórn skal leitast við að ljúka yfirferð umsókna og meta til styrkveitinga innan fjögurra vikna frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum skal svarað skriflega.  

7. Verkefnisstjórn getur farið fram á mótframlag umsækjanda styrks í einstökum verkefnum eða búnaðarkaupum, stjórnin getur einnig sett ákveðin tímamörk við einstök verkefni.

 8. Við lok almannaksárs skal verkefnisstjórn kynna fyrir aðilum “Sáttmálans” einstök verkefni og styrkveitingar ársins.

Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500