Á árum heimstyrjaldarinnar miklu, 1939 til 1945 varð mikil breyting á þjóðfélaginu hérlendis sem víða annarsstaðar. Meðal þess var stórfelld aukning á beitingu ýmiskonar véltækni við atvinnuvegi og daglegt líf.  Samgöngutækni gjörbreyttist og bifreiðaeign almennings varð smám saman regla í stað undantekningar og forréttinda. Samhliða varð tæknibylting í landbúnaði sem var í raun óhjákvæmilegur fylgifiskur fólksflutninga úr sveitum í þéttbýli. Þetta kallaði á nýja þjónustu og aukningu á þeirri sem fyrir var. Á þessum árum hófst verkstæðisrekstur á vegum Kaupfélags Skagfirðinga og var tilgangurinn í fyrstu að þjóna samgöngutækjum í eigu félagsins en smám saman vatt starfsemin upp á sig. Í fyrstu var starfsemin nærr öll nokkurn veginn á því svæði norðan Freyjugötu, þar sem Bifreiðaverkstæðið er enn í dag. Í fyrstu voru notuð húsakynni, sem áður höfðu verið notuð fyrir slátur- og frystihús en síðar var bætt við byggingu þeirri, sem Bifreiðaverkstæðið nýtir. Stór hluti af starfsemi verkstæðisins snýr að þjónustu við eigendur Toyota, Mitsubishi og Volkswagen bifreiða, en að sjálfsögðu fá allir bifreiðaeigendur þá þjónustu sem þeir þurfa við. Að auki er rekin varahlutaverslun, sem gerð er sérstök grein fyrir hér á öðrum stað, hjólbarðaviðgerðir og hjólbarðasala auk smurstöðvar.


Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500