Kaupfélag Skagfirðinga hóf snemma innflutning á korni og framleiðsla á fóðurblöndum hófst á sjötta áratug tuttugustu aldarinnar. Var sú starfsemi lengi vel við Aðalgötuna á Sauðárkróki, í húsnæði er fram til um 1950 hýsti Mjólkursamlag KS, en eftir að KS eignaðist hús og jarðnæði Graskögglaverksmiðjunnar í Vallhólmi, kom fljótt upp sú hugmynd að færa þangað fóðurgerð á vegum þess. Voru keyptar nýtísku vélar og búnaður til fóðurgerðar og settar upp þar. Getur Fóðursmiðjan í Vallhólmi boðið bændum upp á sérhæfða þjónustu á sviði fóðurblöndunar og framleitt blöndur fyrir hvern og einn viðskiptavin, sem hentar honum m.t.t. efnasamsetningar heyfengs.  


Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500