Þegar umsvif loðdýrabúskapar voru sem mest á síðari hluta tuttugustu aldar, var sett upp verksmiðja til fóðurgerðar á svonefndum Gránumóum, ofan Sauðárkróks. Eftir að sú starfsemi komst í þrot, tók KS við rekstrinum, svo þjónusta við loðdýrabændur legðist ekki af. Hefur KS rekið þessa starfsemi síðan og lengst af í nánu samstarfi við Kjötafurðastöð félagsins, sem hefur með yfirstjórn stöðvarinnar að gera.  


Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500