Rafvirkjunarþjónusta á vegum KS var í upphafi samofin öðrum verkstæðisrekstri félagsins, en þegar Byggingavöruverslun félagsins flutti úr húskynnum sínum að Aðalgötu 16 var Rafmagnsverkstæðið flutt þangað og hefur starfsemin verið sérgreind síðan. Nokkru síðar var keypt nýlegt hús við Borgarflöt á Sauðárkróki, og hefur verið rekið þar síðan. Á RKS hefur verið fitjað upp á ýmiskonar nýmælum og varð þar m.a. til fyrirtækið Element, sem á tímabili var umsvifamikið í framleiðslu gasskynjara, en sú starfsemi var síðar seld til Danmerkur og einnig hugbúnaðarþjónustu, sem enn er starfrækt en nú á vegum Skýrr hf. RKS starfar mest í þjónustu við KS og fyrirtæki þess, en einnig hefur það sérhæft sig í viðgerðum og viðhaldi kælibúnaðar og þar með töldum mjólkurkælum í sveitum. Einng sinnir verkstæðið í talsverðum mæli viðgerðum á heimilistækjum.