Vélaverkstæði KS var framan af lengst af rekið í nánu samstarfi við Bifreiðaverkstæði KS, en í byrjun tíunda áratugarins var keypt hús sem Útgerðarfélag Skagfirðinga átti við Hesteyri á
Sauðárkróki. Fékk verkstæðið þar með rúmgóð og hentug húsakynni fyrir starfsemi sína. Stærsti þáttur í starfsemi verkstæðisins er viðhaldsþjónusta fyrir útgerðina, en að auki er unnið að allskonar viðhaldi og nýsmíði fyrir hina ýmsu aðila í Skagafirði og víðar. Þjónusta við landbúnaðinn er einnig mjög veigamikill þáttur í starfseminni, sem og sala á ýmiskonar smíðaefni til vél- og járnsmíði. Verkstæði er vel búið tækjum og þar starfar góður hópur vel þjálfaðra iðnaðarmanna á sviði vélsmíði.