Það hafði lengi verið á stefnuskrá Kaupfélags Skagfirðinga að byggja höfuðstöðvar félagsins á Sauðárkróki, þar sem koma mætti fyrir undir einu þaki sem mestu af verslunarþjónustu fyrirtækisins auk skrifstofuðastöðu yfirstjórnar og bókhaldi. Á áttunda áratug síðustu aldar fékkst svo loksins lóð undir höfuðstöðvar KS og var hafist handa við framkvæmdir, sem stóðu
með hléum allt til ársins 1986, þegar þeim var að mestu lokið. Í júlí 1983 var hinsvegar verslunarrýmið á fyrstu hæð tekið í notkun og var skírt Skagfirðingabúð, en það heiti var m.a. fengið frá stóru samkomutjaldi, sem sérsaumað var fyrir Alþingishátíðina 1930 og notað lengi síðar í tengslum við ýmsa mannfagnaði Skagfirðinga, en þar áður hafði auðvitað verið til Skagfirðingabúð á Þingvelli til forna í tengslum við þinghald þar. Skagfirðingabúð er aðalverslun Kaupfélags Skagfirðinga og er þar rekið alhliða, deildaskipt vöruhús með vefnaðarvörur, tilbúinn fatnað, skó, hreinlætis- og snyrtivörur, búsáhöld, ritföng og gjafavörur, sportvörur, raftæki og hljómtæki, tölvur, úr og skargripi, auk almennrar matvöruverslunar. Verslunin skiptir við innlenda birgja auk þess sem hún flytur allmikið inn á eigin vegum frá erlendum birgjum.