Á Hofsósi var lengi vel starfrækt Kaupfélag Austur-Skagfirðinga, en árið 1969 var það sameinað Kaupfélagi Skagfirðinga. Hafði KS tekið við rekstri verslunar þess í desember árið áður og hefur staðið fyrir verslunarrekstri þar síðan. Á Hofsósi er lítil dagvöruverslun og eldsneytissala sem þjónar Hofsósi og næsta nágrenni sem og ferðafólki, en ferðaþjónusta er talsvert umfangsmikil á Hofsósi og er þar mikilvægast Vesturfarasafnið og starfsemi því tengd.


Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500