Samvinnufélag Fljótamanna var sjálfstætt kaupfélag í Fljótum sem starfaði fram á áttunda áratug síðustu aldar, en var þá sameinað Kaupfélagi Skagfirðinga. Tók KS þá við verslunarekstri SFH í Haganesvík, en með breytingum á þjóðveginum var sýnt, að sú staðsetning gat ekki orðið til frambúðar. Varð því niðurstaðan að byggja verslunarútibú á Ketilási í Austur-Fljótum. Hefur það verið rekið síðan og er þar dagvöruverslun og lítil veitingastofa auk eldsneytissölu.