Kaupfélag Skagfirðinga opnaði útibú í Varmahlíð árið 1968 í þá nýbyggðu húsi. Umsvif útibúsins jukust tiltölulega hratt, og varð það senmma vinsæll áningarstaður ferðafólks. Fljótlega var því húsnæðið aukið og endurbætt til að mæta þörfinni og auka og bæta þjónustu. Í september 1980 varð svo mikill eldsvoði í húsinu og brann þá nánast allt sem brunnið gat. Í framhaldi af því var húsið allt endurbyggt og var opnað aftur í desember sama ár og var þar vel að verki staðið. Húsakynnin hafa svo verið endurbætt og stækkuð a.m.k. tvisvar síðan og er þar nú góð veitingaaðstaða, verslun og póstþjónusta auk eldsneytissölu.

Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500