Eftir að Kaupfélag Skagfirðinga hóf rekstur bifreiða og vélaverkstæðis á Sauðárkróki kom strax til þörf á að hafa til reiðu tiltekna varahluti í vélar og ökutæki. Í nær sextíu ár má segja að í tengslum við bifreiðaverkstæði félagsins hafi verið rekin talsvert umfangsmikil verslun með algenga varahluti í bifreiðar og búvélar, auk hjólbarða, olíuvara og ýmisra annarra vara, er þessu tengjast. Verslunin er að Freyjugötu 9 á Sauðárkróki í sama húsnæði og Bifreiðaverkstæði félagsins er rekið.

Slóð á Bifreiðaverkstæðið


Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500