Saga byggingavörusölu á vegum Kaupfélags Skagfirðinga er nánast jafn löng sögu félagsins. Verslunarumsvif með byggingavörur og skyldar vörur voru þó framan af tengd annarri verslun félagsins þar til árið 1958, að sérstök byggingavörudeild tók til starfa og var hún í fyrstu að Aðalgötu 16 á Sauðárkróki. Umsvif á þessu sviði jukust þó stöðugt og á áttunda áratug síðustu aldar fékk KS lóð á Eyrinni ofanverðri fyrir útivörur af ýmsu tagi. Á þessum árum var innflutningur á mótatimbri umfangsmikill þáttur í starfseminni og timbur flutt í stórum förmum einu sinni til tvisvar á ári og þurfti mikið pláss fyrir birgðirnar. Á níunda áratugnum, þegar mikil breyting varð á verslunarrekstri KS samfara því að Skagfirðingabúð tók til starfa 1983, þá fluttist byggingavöruverslun að mestu út á Eyrina og er nú orðið öll þar. Var reist hús fyrir aðal starfsemina auk þess sem eldri byggingar á Eyrinni eru nýttar í rekstrinum.