Beinn innflutningur hefur frá því fyrsta verið umtalsverður þáttur í starfsemi Kaupfélags Skagfirðinga, en í byrjun tíunda áratugs síðustu aldar var sýnt að aukinnar sérhæfingar væri þörf á þessu sviði. Var þá sett upp Viðskiptastofa KS, sem annast þjónustu við verslunarsvið félagsins á sviði innflutnings, og einnig innkaup á rekstrarvörum annarra deilda og rekstrareininga. Hefur Viðskiptastofa stuðlað að aukinni hagkvæmni í innkaupum hjá fyrirtækjunum innan KS - samstæðunnar samhliða bættri samkeppnishæfni verslana og þjónustudeilda. Einnig veitir Viðskiptastofan þjónustu á sviði tollafgreiðslu og gerð tollskjala og innflutningspappíra fyrir þá er þess óska og er einn örfárra aðila á landsbyggðinni sem hefur leyfi til slíkrar starfsemi.

Kaupfélag Skagfirðinga  |  Ártorgi 1  |  550 Sauðárkróki  |  s.455 4500