Skip to main content

Reglur um heimtöku sauðfjár

Framkvæmd og reglur um heimtöku sauðfjár

Allar pantanir fyrir heimtöku skulu berast eigi síðar en degi áður en slátrað er.

  • Hvert á pöntunin að berast – Það er mjög mikilvægt að pantanir á heimtöku komist tímanlega og skilmerkilega til skila. Hægt er að senda inn pöntun hér en einnig er í boði að að senda með tölvupósti á rett@ks.is . Þeir sem ekki eiga kost á því að senda tölvupóst, senda upplýsingar á sér blaði með bílstjóra (mikilvægt að upplýsingar sé tilbúnar til afhendingar þegar bílstjóri kemur á staðinn) þegar fé er sótt. Þeir sem keyra sjálfir koma upplýsingum til þess sem tekur á móti fé í réttinni við afhendingu. Hér er einnig hægt að nálgast heimtökueyðublaðtil útprentunar.
  • Flokkur eða gerð og flokkur eða gerð til vara – Taka þarf skýrt fram að ef, segjum sem dæmi, viðkomandi innleggjandi vill fá allt heimtekið sem fer í fituflokk 4 og 5 að það sé þá tekið fram að hámarki hversu marga skrokka. Því miður kemur oft fyrir að teknir eru frá allir sem fóru í fituflokk 4 og 5 og svo kemur í ljós að innleggjandi vill ekki nema fá helming af frátekinni heimtöku. Eins öfugt að ef ekkert fer í tiltekinn flokk, sem beðið er um heim, að þá sé tekið fram að ef ekki flokkist í þann flokk að fá þá einhverja aðra tiltekna skrokka (flokka) í staðin. Undantekningar tilfelli eru um að skrokkar sem eiga að vera heimteknir fari í úrkast. Í þeim tilfellum er ekki settur annar skrokkur í heimtöku í staðin nema það sé tekið sérstaklega fram. Ef um einhverja sérstaka gripi er að ræða í heimtöku, þá verður að spreyja þá með lit, til auðkenningar, sem gefinn er upp á fylgibréfi að sé vegna heimtöku. Réttarstarfsmenn munu ekki draga í sundur frá innleggi ef eingöngu eru gefin upp númer.
  • Sögun – Taka þarf skýrt fram hvort eigi að saga heimtökukjötið og hvernig. Hvort skrokkar eigi að vera frosnir eða ófrosnir við afhendingu, heilir, í 7 parta sögun eða fínsögun. Gert er ráð fyrir að skrokkar sem fara í fínsögun séu frystir fyrir sögun.  –  7 parta sögun er þegar skrokkur er hlutaður í; læri heil (2), hryggur heill (1), frampartar heilir (2) og slög heil (2) = sjö hlutar. Athugið að hækill er hafður á lærum í 7 parta sögun. Allt umfram þessa sögun er fínsögun. Taka þarf sérstaklega fram, þegar um fínsögun er að ræða, ef hækillinn á að vera á lærunum. Hækillinn er annars sagaður af.
  • Frágangur – Heimtökuskrokkum er pakkað, hverjum skrokk fyrir sig, í sér kassa. Í hverjum kassa er svo hver hluti fyrir sig í sér poka, læri sér, hryggur sér, súpukjöt sér o.s.frv. Athugið að t.d. hryggur sem sagaður er í kótilettur fer allur saman í einn poka, læri sem fer í sneiðar fer allt saman í einn poka o.s.frv. Ef bæði slögin eru heil fara þau saman í einn poka. Taka þarf fram ef saga á hrygg hvort hann eigi að fara í þverkótilettur eða kótilettur. Heilir skrokkar eru pokaðir og grisjaðir.
  • Afhending – Taka þarf fram ef innleggjandi vill láta senda sér kjötið þegar pöntun á heimtöku er gerð. Kjötafurðastöðin sér ekki um dreifingu á heimtökukjöti fyrir innleggjandann til þriðja aðila. Allur kostnaður sem hlýst af heimtöku er gerður á innleggjanda. Ef sækja á heimtökuna þá er afhending í afurðastöð á 3. og 4. degi frá slátrun milli kl. 10:00 – 12:00 og 13:00 – 15:30 virka daga eða sjá auglýstan afgreiðslutíma. Afgreiðslusími heimtöku er 8254589. Heimtaka er send með flutningsfyrirtæki á 3.-.4. degi frá slátrun á kostnað innleggjanda. Ósóttar heimtökur, á fimmta degi, verða sendar á kostnað innleggjanda. Afgreitt úr afurðastöð er að kostnaðarlausu á auglýstum afhendingartíma. Sjá nánar undir Afurðaverð til bænda.

Hafa ber í huga að ef beiðni fyrir heimtöku skilar sér ekki fyrr en sama dag og slátrað er eða eftir að slátrun á sér stað þá áskilur Kjötafurðastöðin sér þann rétt að verða ekki við heimtökunni.

Samantekt heimtöku:

  • Pöntun daginn fyrir slátrun.
  • Hvaða flokka/skrokka.
  • Hversu marga skrokka.
  • Til vara flokka/skrokka.
  • Sögun.
  • Afhending.