Skip to main content

Fyrir flutning sauðfjár

Það sem huga þarf að áður en fé er sent á sláturhús

  • Við biðjum bændur um að huga að aðstöðu fyrir flutningabíla heim á bæjunum og passa uppá að t.d. landbúnaðartæki séu ekki fyrir.
  • Mjög mikilvægt er að sauðféið sé hreint og merki séu vel læsileg, borið hefur á því að einhver hluti merkis sé ólæsilegur sem ýtir undir ranga lesningu á merkjum.
  • Ekki er tekið við rúnu sauðfé í slátrun né fé í tveimur ullarreyfum. Ef slíkt fé slæðist með verður skrokkurinn verðfelldur.
  • Nauðsynlegt er að bændur séu tilbúnir með fé sitt til afhendingar á umsömdum tíma. Taka þarf féið af beit og setja í hús sólahring áður en það fer í flutning.  Æskilegt er að féið hafi verið ekki skemur en sólahring í svelti áður en slátrun fer fram til að auðvelda vinnu í sláturhúsi og minnka líkur á óhreinindum.
  • Ömerki, gildir fyrir sláturtíð 2023. Örmerki úr sauðfé verða ekki hirt fyrir bændur nema óski þeir sérstaklega eftir því. Beiðni þarf að hafa borist réttinni, rett@ks.is eða í síma 455 4585, daginn áður en er slátrað og gildir þá fyrir þá einu slátrun. Ef bóndi óskar eftir að fá merkin endursend, þá tekur Kjötafurðastöðin enga ábyrgð á notkun þeirra merkja og eru þau alfarið á ábyrgð bóndans, með vísun til reglugerðar um endurnýtingu á einstaklingsmerkjum sé með öllu óheimil á árinu 2024. Merkin sem verða hirt verða sótthreinsuð og senda bónda að sláturtíð lokinni.
  • Huga þarf að heimtöku í síðasta lagi degi áður en slátrað er.